spot_img
HomeFréttirKKÍ og Iceland Express framlengja til 2012

KKÍ og Iceland Express framlengja til 2012

09:21
{mosimage}

(Matthías Imsland framkvæmdastjóri Iceland Express og Hannes S. Jónsson formaður KKÍ handsala samninginn fyrir oddaleikinn góða)

Fyrir oddaleik KR og Grindavíkur í úrslitum Iceland Express-deildarinnar síðastliðinn mánudag undirrituðu þeir Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ og Matthías Imsland, forstjóri Iceland Express, samning um framlengingu á samstarfi körfuboltans á Íslandi og Iceland Express til ársins 2012.

Iceland Express hefur svo sannarlega stutt vel við bakið á körfuboltanum undanfarin ár og hefur metnaður Matthíasar Imsland og hans samstarfsfólks fyrir velgengni körfboltans gert mikið fyrir íþróttina. Það er því einstaklega ánægjulegt að samstarfið verði áfram næstu þrjú árin hið minnsta.

www.kki.is

Fréttir
- Auglýsing -