spot_img
HomeFréttirKKD UMFG og Hringdu ehf. hefja samstarf

KKD UMFG og Hringdu ehf. hefja samstarf

Ljósnet Hringdu er í boði fyrir flest öll heimili í Grindavík. Af því tilefni hefur Hringdu ákveðið að styrkja körfuknattleiksdeild UMFG um 2.500 kr. á ári fyrir hvert heimili sem er með internettengingu hjá Hringdu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Körfuknattleiksdeild Grindavíkur.
 
 
Þetta er því kjörið tækifæri fyrir alla Grindvíkinga til þess að kaupa háhraða internetþjónustu á frábærum kjörum hjá Hringdu og styrkja félagið um leið.
 
JátvarðurJökull Ingvarsson framkvæmdastjóri Hringdu og Ásgerður Hulda Karlsdóttir gjaldkeri körfuknattleikdseildar UMFG skrifuðu undir samstarfsamning fyrir síðasta heimaleik Grindavíkur gegn Njarðvík í 4. liða úrslitum Dominosdeildarinnar. Að sjálfsögðu var samstarfinu fagnað með fræknum sigri Grindavíkur í þriðja leik liðanna.
 
Jón Gauti framkvæmdarstjóri körfuknattleiksdeildar UMFG sagði eftir undirritunina: “Við hjá UMFG fögnum þessu samstarfi við Hringdu. Ef að bæjarbúar kjósa að taka þátt í þessu með okkur, getur upphæðin sem greidd verður á fyrsta heimaleik næsta tímabils haft umtalsverða fjárhagslega þýðingu fyrir körfuknattleiksdeildina. Þarna er möguleiki á því að næla sér í háhraða internet á lægra veðri og styrkja félagið um leið”
 
Játvarður Jökull framkvæmdastjóri Hringdu sagði: “Við hjá Hringdu erum spennt fyrir því að styrkja þetta öfluga starf sem karfan í Grindavík hefur verið að vinna að á undanförnum árum og vonum að þetta geti styrkt frekar stöðu UMFG í körfunni.”
 
  
Fréttir
- Auglýsing -