spot_img
HomeFréttirKjartan Atli: Það sem stendur upp úr eru allir vinirnir sem maður...

Kjartan Atli: Það sem stendur upp úr eru allir vinirnir sem maður hefur eignast

Kjartan Atli Kjartansson, leikmaður Stjörnunnar og fyrrverandi þjálfari FSU ásamt því að hafa þjálfað yngri flokka, skrifaði stutta hugleiðingu um hlutverk og afskipti foreldra af íþróttaiðkun barna sinna á facebook í dag.  Kjartan hvetur þar foreldra til þess að leggja minni áherslu á hvort barnið þeirra sé í A liði heldur fylgjast frekar með því hvort barninu líður vel.  Birtum við hér pistilinn með góðfúslegu leyfi Kjartans. 

 

 

"Sumu fólki er mjög umhugað um árangur barna sinna í íþróttum. Ég hef fengið nokkra reiða pabba til mín því barnið þeirra er ekki í A-liði. Hef líka fengið nokkra foreldra til mín sem spyrja hvort að barnið sitt hafi eitthvað að gera í vissum íþróttum og svo framvegis.

 

Árangur í íþróttum er svo afstæður. Þegar maður horfir yfir ferilinn sér maður að það sem stendur upp úr eru allir vinirnir sem maður hefur eignast í gegnum íþróttirnar. Fyrir mér er það árangur.

 

Íþróttaiðkun er algjör snilld upp á tengslanet og félagsþroska. Þannig að ekki velta því fyrir þér hvort barnið þitt sé í A, B, C eða D liði. Veltu því bara fyrir þér hvernig því gengur að aðlagast og tengjast hópnum. Veltu því fyrir þér hvort því líði vel. 

 

Ef vel er að öllu staðið á barnið þitt eftir að eignast ótal vini í gegnum íþróttirnar, kynnast nýjum stöðum á landinu og fá ómetanlega hluti inn í bankahólfið í Reynslubankanum".  

 

Mynd: [email protected]

[email protected]

Fréttir
- Auglýsing -