HomeNeðri deildir1. deild kvennaKjarninn áfram hjá ÍR

Kjarninn áfram hjá ÍR

ÍR hefur hafið kynningu á leikmannahópi kvennaliðs félagsins fyrir komandi leiktíð. Fyrst ber að nefna fjóra öfluga leikmenn sem hafa myndað mikilvægan kjarna í Breiðholti undanfarin ár.

Þær Heiða Sól Jónsdóttir, Gréta Hjaltadóttir, Aþena Þórdís Ásgeirsdóttir og Stefanía Tera munu allar leika áfram með liðinu í bláu og hvítu búningunum. Þær gegna lykilhlutverki í þeirri uppbyggingu sem hefur staðið yfir hjá félaginu, en á síðasta tímabili tók liðið stór skref fram á við undir stjórn þjálfarans Pane Ilievski Sansa og barðist um sæti í úrslitakeppninni langt fram eftir vetri.

Forráðamenn ÍR segja það skipta miklu að halda í þennan reynslumikla drifkraft og boða að frekari fregna sé að vænta af leikmannamálum kvennaliðsins á næstu dögum.

Fréttir
- Auglýsing -