Í kvöld verður hinn árlegi leikur meistara meistaranna og að þessu sinni fer hann fram í Grindavík. Leikurinn hefst kl. 19:15 en þar eigast við Íslandsmeistarar Grindavíkur og bikarmeistarar Keflaíkur.
Keflavík varð bikarmeistari á síðasta tímabili eftir sigur á Tindastól í bráðfjörugum úrslitaleik í Laugardalshöll og Grindavík varð Íslandsmeistari eftir úrslitarimmu gegn Þór Þorlákshöfn.






