Kentucky og Louisville mættust í öðrum undanúrslitaleik NCAA háskólaboltans í kvöld þar sem Kentucky fór með 61-69 sigur af hólmi. Munurinn var ekki mikill á liðunum í kvöld en Kentucky var við stjórnvölin og unnu loks nauman sigur. Anthony Davis fór mikinn hjá Kentucky með 18 stig og 14 fráköst.
Hjá Louisville var Siva Peyton með 11 stig, 3 fráköst og 3 stoðsendingar. Kentucky mun þá leika til úrslita um NCAA meistaratitilinn gegn annaðhvort Ohio State eða Kansas.




