HomeBónus deildinBónus deild karlaKeflvíkingar tryggðu sér oddaleik

Keflvíkingar tryggðu sér oddaleik

Keflavík knúði fram úrslitaleik í átta liða úrslitum Bónus deildar karla með baráttusigri á Val, 88-81, í troðfullri Blue-höll í kvöld. Remy Martin fór fyrir heimamönnum með 27 stig en Mirza Bulic átti sömuleiðis stórleik með 18 stig og 16 fráköst, á meðan Kristófer Acox var atkvæðamestur Valsmanna með 24 stig.

Með sigrinum er staðan í einvíginu orðin 2-2 og er því ljóst að grípa þarf til oddaleiks um sæti í undanúrslitum. Sá leikur fer fram næstkomandi sunnudag og ræður úrslitum um hvort liðið heldur áfram í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -