HomeÚti í heimiEvrópaKeflvíkingar Scania meistarar - Davíð Breki Scania kóngur

Keflvíkingar Scania meistarar – Davíð Breki Scania kóngur

Keflavíkurdrengir í 10. flokki fóru alla leið á Scania Cup um helgina og stóðu uppi sem sigurvegarar eftir öruggan sigur á sænska liðinu Kungsholmen Basket í úrslitaleiknum.

Leiknum lauk með níu stiga sigri, 68-59, en íslenska liðið vann alla sína leiki á mótinu og sýndi mikinn styrk gegn sterkustu liðum Norðurlanda.

Davíð Breki Antonsson var valinn besti leikmaður mótsins í sínum aldursflokki og þeir Arnar Freyr Elvarsson voru báðir valdir í úrvalslið mótsins fyrir vaska framgöngu.

Frábær árangur í Svíþjóð

Keflavíkurstúlkur í 10. flokki létu sömuleiðis að sér kveða á mótinu og enduðu í fjórða sæti eftir baráttuleik gegn sænska liðinu Duvbo í leiknum um bronsverðlaunin.

Þrátt fyrir tapið var árangur þeirra til eftirtektar og var Kamilla Nótt Bergsveinsdóttir verðlaunuð fyrir frammistöðu sína með vali í úrvalslið mótsins. Heildarárangur félagsins á þessu sterka boðsmóti mikið fagnaðarefni og staðfestir þann góða vöxt sem er í yngri flokkum félagsins.

Ert þú með fréttir af Scania Cup? Sendu þær með mynd á [email protected].

Fréttir
- Auglýsing -