Þór tók á móti nýkrýndum bikarmeisturum Keflavíkur í frábærum leik í Icelandic Glacial höllinni í kvöld. Heimamenn komu sterkir til leiks og spiluðu mjög góða vörn. Illa gekk hjá Keflvíkingum að klára sóknir sínar almennilega. Munurinn varð mestur 10 stig í fyrsta leikhluta í stöðunni 22-12, heimamönnum í vil, en gestirnir náðu að laga stöðuna örlítið fyrir lokin og staðan eftir 1. leikhluta var 22-17.
Jafnræði var með liðunum í byrjun 2. leikhluta. Heimamenn spiluðu frábæra vörn í fyrri hálfleik en þar voru Gummi jóns og Darri Hilmars fremstir meðal jafningja. Lítið gekk upp hjá gestunum sóknarlega en þeir spiluðu þó fína vörn. Þór náði að loka leikhlutanum með 12 stiga mun. Staðan í hálfleik var 42-30 heimmönnum í vil.
Það var eins og gestirnir væru ekki mættir til leiks í byrjun seinni hálfleiks og heimamenn gengu á lagið. Þeir náðu tuttugu stiga forystu um miðjan 3. leikhluta þegar Govens setti niður þrist. Þá fóru Keflvíkingar að vakna til lífsins og minnkuðu muninn jafnt og þétt. Síðustu fjórar og hálfa mínútuna skoruðu heimamenn aðeins 2 stig. Staðan fyrir loka leikhlutann var 60-52.
Keflvíkingar minnkuðu muninn jafnt og þétt og náðu muninum minnst niður í 2 stig í stöðunni 67-65 þegar um 3 mínútur lifðu leiks. Þá bitu heimamenn frá sér með góðri vörn og skynsömum sóknarleik. Heimamenn kláruðu svo leikinn með síðustu 8 stigum leiksins. Þórsarar lönduðu sætum 10 stiga sigri og þar með eru þeir með betri innbyrðis viðureign á Keflavík.
Gummi Jóns og Darri Hilmars áttu stórleik þrátt fyrir að hafa einungis skorað 17 stig samtals. Drengirnir sýndu þvílíkan varnarleik í kvöld. Ég leyfi mér að fullyrða að þetta er eitt það besta sem sést hefur af varnarleik í vetur. Ef ungir leikmenn vilja læra að spila frábæran varnarleik þá ættu þeir að verða sér úti um upptöku af þessum leik. Þvílíkir snillingar báðir tveir.
Gríðarleg stemning var í húsinu og Græni drekinn fór gjörsamlega á kostum. Þeir eru búnir að endurheimta TROMMARA Íslands og það sást greinilega á stemningunni í húsinu. Einnig var gaman var að sjá hversu vel aðrir stuðningsmenn tóku undir með þeim þegar að líða tók á leikinn.
Atkvæðamestir hjá Þór voru : Darrin Govens 22 stig/6 stoðsendingar/5 fráköst. Blagoj Janev 21 stig/10 fráköst. Junior Hairston 15 stig/20 fráköst/6 varin skot. Gummi Jóns 10 stig/6 stoðsendingar/6 fráköst. Darri Hilmars 7 stig/7 fráköst.
Atkvæðamestir hjá Keflavík voru: Jarryd Cole 24 stig/6 fráköst. Charles Parker 15 stig/10 fráköst. Kris Douse 9 stig. Maggi Gunn 6 stig/6 fráköst. Halldór Halldórs 6 stig. Valur Orri 3 stig. Arnar Freyr 2 stig.
Dómarar leiksins voru þeir Einar Þór Skarphéðinsson og Davið Kr. Hreiðarsson. Þeir komust vel frá erfiðu verkefni.
Mynd/ Davíð Þór
Umfjöllun/ Hákon Hjartarson



