spot_img
HomeFréttirKeflvíkingar framlengja við lykilleikmenn

Keflvíkingar framlengja við lykilleikmenn

16:53
{mosimage}

(Frá undirskriftinni í dag) 

Íslandsmeistaralið Keflavíkur í körfuknattleik kvenna mun koma nær óbreytt til leiks næsta haust eftir að körfuknattleiksdeildin framlengdi samninga sína við nokkra lykilleikmenn liðsins. Frá þessu er greint á vef Víkurfrétta, www.vf.is  

Birna Valgarðsdóttir, Svava Ósk Stefánsdóttir, Halldóra Andrésdóttir, Lóa Dís Másdóttir, Rannveig Randversdóttir og Pálína Gunnlaugsdóttir skrifuðu allar undir tveggja ára samning við liðið á fundi í Keflavík í dag. Þá staðfesti Jón Halldór Eðvaldsson, þjálfari, að hann yrði áfram með liðið, en tveggja ára samningur hans rennur út að ári. 


Sjá viðtal við Jón Halldór í Vef TV Víkurfrétta

www.vf.is

Fréttir
- Auglýsing -