Keflavík sigraði ÍR með 98 stigum gegn 79 í 11. umferð Dominos deildar karla. Eftir leikinn er Keflavík því í 6.-8. sæti deildarinnar ásamt Þór frá Þorlákshöfn og Skallagrím á meðan að ÍR er leik fyrir aftan í 9.-11. sæti ásamt Haukum og Njarðvík. Leikurinn var sá síðasti sem að leikinn verður fyrir jól.
Snemma ljóst
Lið Keflavíkur virtist snemma ætla að ganga frá þessum leik. Voru hreint stórkostlegir á báðum endum vallarins strax í fyrsta leikhluta. Sigruðu hann með 26 stigum gegn 14. Sérstaklega mikla breytingu mátti sjá á hvernig varnarleik liðið lék ef miðað er við hvernig þeir hafa verið að spila áður í vetur. Ákafinn og áræðnin virtist öll vera þeirra megin í kvöld. Í öðrum leikhlutanum bættu þeir svo bara við forskot sitt. Leiddu með 15 stigum í hálfleik 48-33.
Kjarninn
Vissulega er hægt að rökræða hvort það hafi verið Keflavík sem að vann þennan leik, eða hvort það hafi verið ÍR sem að tapaði honum. Breiðhyltingar myndu líklegast segja það hafa verið í sinna manna höndum að tapa honum á meðan að Keflvíkingar myndu segja þetta hina miklu upprisu stórveldisins eftir nokkra magra mánuði. Hér ætlum við að sættast á báðar nálganir.
Lið ÍR virtist ekki mæta tilbúið til leiks í kvöld. Þá kannski sérstaklega varnarlega. Þeir leyfa Keflavík að setja næstum 100 stig á töfluna. Sóknarlega virtust þeir einfaldlega hálf týndir. Leikmaður Keflavíkur, Reggie Dupree, gerði virkilega vel í að stöðva leikstjórnanda ÍR, Matthías Orra Sigurðarson, í leiknum. Ekki var þó við burðarrása þeirra sóknarlega að sakast. Bæði áttu Quincy Hankins-Cole og Sveinbjörn Claessen ágætis daga þeim megin á vellinum. Restin af liðinu var hinsvegar ekki nógu góð.
Að sama skapi virðast leikmenn Keflavíkur hafa fundið neistann á ný. Varnarlega, frábærir í kvöld. Skora heilt 31 stig af töpuðum boltum ÍR liðsins og þar væri hægt að segja að helsti munurinn á liðunum hafi legið. Einnig var allt annað að sjá hvernig sókn þeirra rúllaði. Fyrir aðeins nokkrum vikum virtist allt snúast um að koma boltanum á Amin Stevens hjá þeim sóknarlega, á meðan að í kvöld var það ekkert aðal atriði. Vissulega var hann stigahæsti leikmaður liðsins, en allt byrjunarlið þeirra skoraði einnig 10 stig eða meira.
Tölfræðin lýgur ekki
Leikmenn Keflavíkur stálu 15 boltum í kvöld gegn aðeins 5 stolnum boltum hjá ÍR.
Töffarasigur! Nú notum við jólafríið til þess að fínpússa og vera ready í alvöruna _x1f440_ #kefcommin
— Hörður vilhjálmsson (@Hossiaxel) December 15, 2016
Hetjan
Amin Stevens var framlagshæstur leikmanna Keflavíkur í kvöld, en hann skoraði 29 stig, tók 14 fráköst, gaf 4 stoðsendingar og stal 5 boltum á þeim tæpu 38 mínútum sem hann spilaði.
Umfjöllun, myndir, viðtöl / Davíð Eldur
Viðtöl:




