spot_img
HomeFréttirKeflavíkurkonur fá leikstjórnanda á reynslu

Keflavíkurkonur fá leikstjórnanda á reynslu

 
Jón Halldór Eðvaldsson hefur fengið serbneska leikstjórnandann Marina Caran til reynslu í lið Keflavíkur í Iceland Express deild kvenna. ,,Hún var fengin til okkar til að styrkja hópinn í því að ná þeim markmiðum sem við höfum sett okkur,” sagði Jón í samtali við Karfan.is.
Keflavík er í 2. sæti A-riðils, sex stigum á eftir toppliði Hamars og er eina lið deildarinnar sem getur orðið deildarmeistari ásamt Hamri.
 
,,Við höfum verið að glíma við mikil meiðsli á þessu tímabili, Ingibjörg er að koma úr krossbandaslitum, Rannveig fór í aðgerð í desember, Marín er búin að vera í meiðslum á læri frá því í september. Þannig að við ákváðum að fara þessa leið til þess að styðja við þær stelpur sem eru þarna fyrir,” sagði Jón.
 
Næsti deildarleikur Keflavíkurkvenna er gegn Haukum á útivelli þann 9. febrúar næstkomandi en á föstudag mætast Njarðvík og Keflavík í undanúrslitum Poweradebikarsins.
 
Mynd/ Jón Halldór er kominn með nýjan leikstjórnanda.
 
Fréttir
- Auglýsing -