Keflvíkingar hafa bætt við enn einum leikmanninum í sinn hóp fyrir lokaátökin í úrvalsdeildinni. Urule Igbavboa heitir kappinn en hann er stór og stæðilegur miðherji/framherji sem kemur til með að aðstoða inn í teignum.
Urule hóf árið í þýskalandi en meiddist fljótlega þegar tímabilið þar hófst og var í kjölfarið sagt upp. Hann hefur ekkert spilað síðan þá. Von er á kappanum til landsins í fyrramálið og væntanlega í Keflavíkurbúning á sunnudag þegar þeir mæta Snæfell í Bikarkeppninni.



