23:30
{mosimage}
(Pálína Gunnlaugsdóttir sækir að Unni Töru Jónsdóttur)
Íslandsmeistarar Hauka voru ekki mikil fyrirstaða í Sláturhúsinu í kvöld þegar Keflavík skellti Hafnarfjarðarkonum 106-58 í Iceland Express deild kvenna í körfuknattleik. Með sigri kvöldsins er Keflavík komið með aðra hönd á deildarmeistaratitilinn og þurfa Keflvíkingar nú aðeins einn sigur til viðbótar til að tryggja sér efsta sætið. Þetta kemur fram á www.vf.is
TaKesha Watson lét að vanda mikið fyrir sér fara hjá Keflavík og gerði 34 stig í kvöld, stal 9 boltum, tók 8 fráköst og gaf 6 stoðsendingar. Næst henni í liði Keflavíkur var Birna Valgarðsdóttir með 22 stig en Haukar léku í kvöld án Kieru Hardy sem á dögunum hlaut heilahristing og samkvæmt læknisráði á Kiera að taka sér frí og því ákváðu Haukar að leita að eftirmanni hennar.
Kiera lék 22 leiki fyrir Hauka og skoraði í þeim 22,6 stig, tók 5,5 fráköst og gaf 5,8 stoðsendingar. Þá var Ragna Margrét Brynjarsdóttir einnig fjarverandi hjá Haukum sökum meiðsla. Stigahæst í liði Hauka í kvöld var Telma B. Fjalarsdóttir með 14 stig og 17 fráköst og Kristrún Sigurjónsdóttir gerði 11 stig.
Haukar áttu aldrei möguleika í leiknum og fljótt varð ljóst í hvað stefndi þar sem Keflavík leiddi 29-14 eftir fyrsta leikhluta og var staðan í hálfleik 56-30 og svo lokatölur 106-58 eins og fyrr greinir.
Keflavík er á toppi deildarinnar með 36 stig en KR getur jafnað Keflavík að stigum með sigri í næstu tveimur umferðum svo fremi Keflavík tapi í næstu umferð gegn KR og svo gegn Hamri í síðustu umferðinni.



