Keflavík vann nauman sigur á KR í dag með 63 stigum gegn 60 í fyrstu viðureign liðanna í fjögurraliða úrstlium. KR stúlkur mættur grimmar til leiks og voru að spila vel en Keflavík átti betri endasprett og kláruðu með sigri.
Nánast allir voru nú þegar búnir að senda KR í sumarfrí í umtalinu fyrir þennan leik eftir að í ljós kom að Kara Sturludóttir yrði í banni. KR liðið sýndi svo sannarlega að liðið er búið miklum krafti og fleiri leikmönnum. Í raun var þessi umræða hreint ótrúleg miðað við þann mannskap sem KR hefur í sínum röðum.
KR liðið sýndi það í fyrri hálfleik og voru þær komnar í 10 stiga forystu í öðrum leikhluta öllum til mikillar undrunar (nema hugsanlega þeim sjálfum) Keflavíkurstúlkur vöknuðu hinsvegar fljótlega til lífsins og náðu að minnka muninn niður í 1 stig fyrir hálfleik og þannig var staðan þegar gegnið var til leikhlés.
Í hálfleik náði Karfan.is í skottið á Köru Sturludóttir þar sem hún sat í stúkunni og varð henni að orði að þetta væri nánast erfiðara að horfa á félaga sína úr stúkunni en að spila með. En hvað um það leikurinn hélt áfram og var jafnræði með liðunum fram á síðustu sekúndu leiksins. Í stöðunni 63:60 þegar um 20 sekúndur voru eftir áttu KR liðið boltann en fóru illa að ráði sínu og náðu ekki að jafna né minnka muninn niður.
Mynd/Texti: Skuli





