spot_img
HomeFréttirKeflavík stóðst prófið

Keflavík stóðst prófið

 

Keflavík sigraði KR fyrr í kvöld á heimavelli sínum, í TM Höllinni, með 89 stigum gegn 81. Fyrir leikinn voru liðin í 1. og 2. sæti deildarinnar. Keflavík tveimur stigum á undan og því spurningin um það hvort KR næðu þeim að stigum með sigri í kvöld. Eftir leikinn eru Keflavík því einir á toppi deildarinnar og með 4 stiga (tveggja leikja) forystu á Njarðvík og KR í 2.-3. sætinu.

 

 

 

Keflavík komust fyrst á stigatöfluna með laglegu sniðskoti frá Earl Brown, en hann var hreint óstöðvandi í þessum fyrsta leikhluta (15 stig, 3 stoðsendingar og 2 fráköst í hlutanum – skoraði meðal annars sína fyrstu þriggja stiga körfu í vetur) Keflavík, sem virtist vera skrefinu á undan komst mest í 11 stiga forystu í leikhlutanum, sem endaði þó með að KR klóraði aðeins í bakkann. Leikhlutinn endaði með 5 stiga forystu heimamanna, 30-25.

 

Annan leikhlutann virtist Keflavík einnig ætla að fara hratt af stað, líkt og í þeim fyrsta. Davíð Páll Hermannson opnaði 2. með þriggja stiga körfu og aftur sigldi Keflavík í um 10 stiga forystu sem þeir héldu þangað til um miðbygg hans. Þá var hinsvegar komið að áhlaupi íslandsmeistarana, en eftir að leikstjórnandi Keflavíkur, Valur Orri Valsson settist á bekkinn, virtist heimamönnum aðeins fatast flugið. Segja mætti að sókn þeirra hafi á tímabilum verið eilítið vandræðaleg á þessum kafla. KR gekk á lagið og náðu sinni fyrstu forystu í leiknum þegar 1:30 voru eftir af hálfleiknum

 

Þegar liðin héldu til búningsherbergja í hálfleik var staðan jöfn 47-47. Fyrir heimamenn var það áðurnefndur Earl Brown sem var framlagshæstur (15 stig, 5 fráköst, 3 stoðsendingar og 2 varin skot) á meðan að fyrir gestina var það Mike Craion (16 stig, 7 fráköst, 2 stoðsendingar og 2 varin skot) sem dróg vagninn.

 

Seinni hálfleikur þessa toppslags var svo ekki af verri endanum fyrir áhorfendur. Gjörsamlega allt var í járnum er liðin skiptust á að hafa forystuna. KR komust mest í 5 stiga forystu á meðan að sú mesta sem Keflavík nældi í var sú sem þeir enduðu leikinn í (7 stig) Sterkar innkomur þeirra Ágústs Orrasonar og Reggie Dupree í þessum seinni hálfleik voru í raun og veru það sem að skildi liðin að í lokin (skoruðu einnig sitthvorn veigamikinn þristinn í lokin) 

 

Leikurinn endaði því með 7 stiga sigri heimamanna í Keflavík, 89-81.

 

Maður leiksins var leikmaður Keflavíkur, Earl Brown Jr., en hann skoraði 24 stig, tók 15 fráköst, gaf 6 stoðsendingar og varði 3 skot á þeim 38 mínútum sem hann spilaði í leik kvöldsins.

 

Punktar: 

  • KR tóku 50 fráköst en Keflavík 41
  • Keflavík gaf 17 stoðsendingar en KR 11
  • Liðin töpuðu jafn mörgum boltum, 13
  • Í 10 skipti var leikurinn jafn
  • Í 10 skipti skiptu liðin um forystu
  • Keflavík voru yfir í 31 mínútu í leiknum en KR 9
  • Keflavík fékk 27 stig af bekknum en KR 6
  • KR skoruðu 19 stig úr hraðaupphlaupum en Keflavík 12
  • KR skoruðu 42 stig inní teig en Keflavík 34
  • Þeir Pavel Ermolinski og Helgi Már Magnússon voru báðir í búning í upphitun (og á bekk í fyrri hálfleik), en komnir í borgaralegan klæðnað þegar seinni hálfleikur hófst.

 

Tölfræði

 

Viðtöl og myndbrot koma innan skamms

Umfjöllun & myndir / Davíð Eldur : Myndasafn

Myndir / SBS : Myndasafn

 

 

Fréttir
- Auglýsing -