Þór sigraði Keflavík í 16 liða úrslitum Maltbikarkeppni karla með 70 stigum gegn 93. Þetta er annað árið í röð sem að Þór slær Keflavík út, en í fyrra slógu þeir þá út í undanúrslitum keppninnar.
Köld
Fyrir leikinn voru bæði lið nokkuð köld. Eftir ágætis byrjun höfðu bæði lið tapað í síðustu umferðum. Allra síðast, nú fyrir helgina, tapaði Þór fyrir ÍR í Breiðholti og Keflavík illa fyrir KR á heimavelli. Því mjög mikilvægt, fyrir bæði lið, að reyna að komast aftur á sigurbrautina.
Heimamenn betri í byrjun
Keflvíkingar léku á alls oddi í byrjun leiks. Sigruðu fyrsta leikhlutann 22-17 þar sem að Guðmundur Jónsson setti 12 fyrir þá, með 100% nýtingu. Einnig voru þeir að fá fín framlög frá fleiri “auka” leikurum sínum.
Kaflaskil
Þórsarar, sem voru undir í hálfleik, spiluðu flottan þriðja. Maciej Baginski, sem hafði sökum villuvandræða, eytt miklum hluta fyrri hálfleiksins á bekknum, leiddi sína menn í þægilega 8 stiga forystu fyrir lokaleikhlutann. Þann mun náði Keflavík aldrei að vinna niður, þvert á móti hrundi botninn algjörlega úr leik þeirra undir lok leiksins. Töpuðu að lokum með 23 stigum, 70-93.
Tölfræðin lýgur ekki
Keflavík var með 15 tapaða bolta á móti aðeins 6 hjá Þór í leiknum. Úr þessum töpuðu boltum náðu Þórsarar að moða 16 stig á meðan að Keflavík nýtti sína aðeins til 4 stiga.
Hvaða lægð er í kef!? Enginn í stúkunni á þessum magnaða bikarleik! #kefþór #korfubolti #þórnation
— Ragnar Nathanaelsson (@RaggiNaT) December 4, 2016
Lægð í Keflavík
Það er engum blöðum um það að fletta að í liði Keflavíkur eru miklir hæfileikar og þar ríkir mikil hefð. Miklu meira en svo að liðið eigi að bjóða stuðningsmönnum sínum upp á að liðið tapi í tvígang í röð með yfir 20 stigum á heimavelli. Þeir fá nú nokkra (fleiri en einn) daga til þess að taka sig saman í andlitinu áður en að þeir mæta Þór á Akureyri í næstu umferð Dominos deildarinnar og ljóst er að ef að þeir vinna þann leik ekki þá hlýtur stjórnin þar að fara að hugsa hvað hún geti gert til þess að komast hjá frekari niðurlægingum á næstunni. Eitt er að tapa fyrir KR og Þór, algjörlega, allt annað væri fyrir þá að tapa fyrir nýliðum Þórs frá Akureyri.
leikmenn eru ekki einu sinni að hlusta í leikhléum. Þessi vinalína í stjórninni þarf að hætta.!!!!
— Guðmundur Skúlason (@MummiSkula) December 4, 2016
Til alls líklegir
Lið Þórs hefur sýnt það á löngum köflum að þeir séu með eitt besta lið landsins. Hafa þó, líkt og kannski fleiri lið í deildinni, verið einkar óstöðugir. Að vinna KR í Vesturbænum og tapa fyrir ÍR í Breiðholtinu á innan við mánuði segir allt sem segja þarf um það jójó sem að liðið er. Voru góðir í dag. Ef þeir ná að halda í þann leik sem að þeir spiluðu í dag, eru þeir til alls líklegir. Fóru í fyrsta skipti í Laugardalshöllina í fyrra, geta alveg farið þangað aftur, sama hvaða mótherja þeir þurfa að fara í gegnum á leiðinni.
Hetjan
Leikmaður Þórs, Tobin Carberry, lék á alls oddi í leik dagsins. Skoraði 34 stig, tók 9 fráköst og gaf 6 stoðsendingar á þeim 37 mínútum sem hann spilaði.
Umfjöllun / Davíð Eldur




