HomeFréttirKeflavík leiðir í hálfleik 52-41

Keflavík leiðir í hálfleik 52-41

Keflavík leiðir með 11 stigum í hálfleik, 52-41, eftir fjörugan fyrri hálfleik í laugardalshöllinni.  Keflavík tók frumkvæðið strax á upphafsmínútum leiksins og hafa ekkert gefið eftir.  Stuðningsmenn beggja liða taka vel undir og óhætt að segja að svona stemming sé ekki á hverju strái á Íslandi.  Höllin er nánast full og allir taka vel undir.  
Stigahæstur í liði Keflavíkur í hálfleik var Charles M. Parker með 17 stig og 6 fráköst en næstir voru Magnús Gunnarsson með 11 stig og 6 stoðsendingar og Jarryd Cole með 8 stig og 5 fráköst.  Í liði Tindastóls var Maurice Miller stigahæstur með 11 stig en næstir voru Svavar Atli Birgisson og Friðrik Hreinsson með 8 stig hvor. 
 
Fréttir
- Auglýsing -