spot_img
HomeFréttirKeflavík Íslandsmeistari í 10. flokki kvenna

Keflavík Íslandsmeistari í 10. flokki kvenna

12:07

{mosimage}
(Gull- og Silfurlið Keflavíkur frá því í morgun)

Keflavík-A varð Íslandsmeistari í dag í 10. flokki kvenna þegar þær unnu Keflavík-B í úrslitaleik Íslandsmótsins. A-lið Keflavíkur lagði Grindavík að velli í undanúrslitum og Keflavík-B vann Hauka og því ljóst fyrir leikinn að gullið færi til Keflavíkur.

Leikurinn var nokkuð rólegur til að byrja með og stigaskor lítið. En smátt og smátt komust liðin betur inn í leikinn og fyrri hálfleikur var stórskemmtilegur og hnífjafn. Þrátt fyrir að vera samherjar liðsmenn beggja liða var augljóst að þær ætluðu að berjast til síðasta manns og gaf hvorugt liðið eftir tommu nokkurn tímann í leiknum.

Staðan eftir 1. leikhluta var 13-6 fyrir A-liðið en í öðrum leikhluta snérist taflið við og B-liðið var sterkara og minnkuðu þær muninn jafnt og þétt og í hálfleik munaði aðeins þremur stigum 20-17.

Seinni hálfleikur var að stórum hluta til eign A-liðsins og reyndust þær sterkari þegar á reyndi og höfðu sigur 50-40.

María Ben Jónsdóttir var valin besti maður leiksins en miðherjinn knái skoraði 15 stig, tók 10 fráköst, varði fjögur skot, stal fjórum boltum og var með eina stoðsendingu.

myndir: [email protected]

{mosimage}

{mosimage}

{mosimage}

{mosimage}

Fréttir
- Auglýsing -