Keflavík lagði Hamar/Þór í fyrri undanúrslitaleik VÍS bikarvikunnar í Smáranum í kvöld.
Keflavík mun því leika til úrslita á laugardag gegn sigurvegara viðureignar Grindavíkur og Tindastóls, en leikur þeirra er á dagskrá seinna í kvöld.
Fyrir leik
Keflavík er sigursælasta lið bikarkeppninnar frá upphafi með 16 titla, en þeim hafa þær náð í 25 úrslitaleikjum. Hamar/Þór hefur hinsvegar aldrei átt leik í úrslitum keppninnar. Það var ekki eina ástæða þess að Keflavík var kannski talinn sigurstranglegri aðilinn í dag, en í deildarkeppni Bónus deildarinnar hefur Keflavík unnið 9 leikja sinna af 16 á meðan Hamar/Þór er aðeins með 2 sigra í þessum 16 umferðum.
Annar þessara sigra Hamars/Þórs kom þó fyrir þær gegn Keflavík, en ekki er langt síðan þær lögðu þær heima í Hveragerði. Svosem unnu þær einnig í leik á undirbúningstímabilinu, hversu mikinn lærdóm sem draga má af því.
Gangur leiks
Hamar/Þór byrjaði leik kvöldsins af miklum krafti og leiddu þær með 5 stigum að fyrsta fjórðung loknum, 17-22, en mest höfðu þær verið 10 stigum yfir í leikhlutanum. Keflavík nær svo aðeins að spyrna við í öðrum fjórðungnum, en eru þó enn undir þegar liðin halda til búningsherbergja í hálfleik, 36-38.
Gífurlega miklu munaði um Ana Clara Paz fyrir Hamar/Þór í þessum fyrri hálfleik, en í hálfleik var hún komin með 17 stig. Bandarískur leikmaður Keflavíkur Keishana Washington var að sama skapi frábær í fyrri hálfleiknum fyrir Keflavík með 12 stig og 9 fráköst.
Í upphafi seinni hálfleiksins fær Keflavík nokkur skot til að detta og eru það þær sem leiða lengst af í þeim þriðja. Hamar/Þór þó ekki langt undan og er munurinn aðeins 6 stig fyrir lokaleikhlutann, 61-55.
Keflavík hefur þann fjórða á 7-0 áhlaupi og eru komnar í álitlega stöðu þegar 8 mínútur eru eftir 68-55. Þetta áhlaup virtist vera það sem vann leikinn að lokum fyrir Keflavík. Vissulega börðust Hamar/Þór eins og skepnur þessar síðustu átta mínútur en áttu erfitt með að fá boltann til að detta fyrir sig. Niðurstaðan að lokum nokkuð sterkur sigur Keflavíkur, 82-77.

Kjarninn
Keflavík er með betra lið en Hamar/Þór og þær sýndu það á löngum köflum leiksins í kvöld. Það skal þó ekki tekið af Hamri/Þór að þær mættu með eindæmum vel inn í leikinn og hefðu með smá heppni kannski náð að fara með sigur af hólmi.
Getum skrifað það á stofnanaminni fyrir þetta Keflavíkurlið að tryggja sig í úrslitaleikinn. Það er samt bara hluti ástæðunnar, hin er sú að þeirra lykilleikmenn, þá helst Keishana og Sara Rún, mættu þegar það þurfti og sigldu þessu heim fyrir þær.
Það væri hart að kalla tímabil Keflavíkur til þessa vonbrigðatímabil, en þær eru alveg á mörkunum samt sem áður. Sem stendur í 6. sæti deildarinnar og nokkuð líklegar til að enda í neðri helming skiptingarinnar sem verður innan fárra umferða. Hver veit nema það breytist allt núna samt? Með ferð í úrslitin og mögulegum bikarmeistaratitil.

Stigahæstar
Stigahæstar fyrir Keflavík í leiknum voru Keishana Washington með 22 stig og Sara Rún Hinriksdóttir með 17 stig. Fyrir Hamar/Þór var stigahæst Ana Clara Paz með 33 stig.
Hvað svo?
Sigurvegarar kvöldsins mætast í úrslitaleik bikarkeppninnar á laugardaginn, en seinni undanúrslitaviðureignin er á milli Tindastóls og Grindavíkur nú seinna í kvöld.




