spot_img
HomeFréttirKeflavík aftur á toppinn eftir um klukkustundar fjarveru

Keflavík aftur á toppinn eftir um klukkustundar fjarveru

 

Heil umferð fór fram í Dominos deild kvenna í dag, einn leikur í 1. deildinni og einn í Maltbikarkeppni karla.

 

Keflavík komst aftur á topp Dominos deildarinnar með sigri á Skallagrím eftir að hafa verið í 2.-3. sætinu stutta stund, en fyrr í dag hafði Snæfell unnið Hauka og þar með komist á topp deildarinnar sökum tímamismunar á leik þeirra og viðureignar Keflavíkur og Skallagríms. Þá sigraði lið Stjörnunnar Val að Hlíðarenda og deilir nú 3.-4. sætinu með liði Njarðvíkur, sem að tapaði fyrir Grindavík fyrr í dag. 

 

Þá sigraði lið Þórs frá Akureyri KR í Vesturbænum í 1. deild kvenna og er því komið í efsta sæti deildarinnar, ásamt Breiðablik. KR er einum sigurleik frá þeim í 3. sætinu.

 

Einnig sigraði lið Hauka B lið sitt og er þar með komið áfram í 8 liða úrslit Maltbikarkeppni karla.

 

Staðan í Dominos deild kvenna

Staðan í 1. deild kvenna

 

Leikir dagsins

 

Dominos deild kvenna:

 

Skallagrímur 55-68 Keflavík 
 

Njarðvík 59 – 85 Grindavík 
 

Snæfell 75 – 63 Haukar 
 

Valur 68 – 76 Stjarnan
 

 

1. deild kvenna:

KR 57 – 66 Þór Ak. 
 

 

Bikarkeppni karla:

Haukar 99-65 Haukar B 

Fréttir
- Auglýsing -