Keflavík sigraði granna sína í Njarðvík í 5. umferð Dominos deildar kvenna með 71 stigi gegn 65. Eftir leikinn eru Njarðvík þá um miðja deild með 3 sigra og 1 tap á meðan að Keflavík deilir toppsætinu með Snæfell, 4 sigrar og 1 tap.
Tvö spennandi lið
Nú ætti öllum að vera ljóst að Keflavík er með eitt mest spennandi körfuknattleikslið landsins. Hafa aðeins tapað einum leik það sem af er móti og eru því ásamt meisturum síðustu þriggja ára, Snæfell, í efsta sæti deildarinnar. Mikið til er liðið byggt upp af upplöldum leikmönnum og ólíkt mörgum öðrum liðum virðist erlendur leikmaður þeirra í algjöru aukahlutverki.
Ég er svo skotin í þessu keflavíkurliði. Hélt ekki að það væri eitthvað sem ég myndi nokkurn tímann geta sagt. Þvílíkir naglar!
— BenchRider (@ElinLara13) October 22, 2016
Lið Njarðvíkur er einnig mjög áhugavert. Hreint ótrúlegt að fyrir nokkrum vikum hafi spekingar verið að ræða það á milli sín hvort að þær ættu eftir að vinna nokkurn leik í vetur. Eru að sjálfsögðu með langbesta leikmann deildarinnar í Carmen Tyson-Thomas, en eru einnig með fullt af hæfileikaríkum stelpum í kringum hana sem hafa komið mörgum á óvart í vetur.
Góð/Slæm Byrjun
Keflavík byrjaði leikinn mun betur heldur en Njarðvík. Voru komnar í 2-13 eftir aðeins nokkurra mínútna leik. Njarðvík náðu þá að hægja aðeins á hlutunum og komu í veg fyrir að þær misstu leikinn frá sér strax á þessum fyrstu mínútum. Leikhlutinn endaði þó með 6 stiga forystu gestanna, 12-18.
Ekkert frítt
Ljóst var frá fyrstu andartökum leiksins að stjörnuleikmaður Njarðvíkur, Carmen Tyson-Thomas, átti ekki að fá neitt gefins. Varnarmenn Keflavíkur voru duglegir að deila með sér þeirri ábyrgð. Skipt var ört um varnarmann á henni og virtist það þreyta hana eilítið. Einnig var eins og að hún ætti hreinlega ekki að fá að skora neitt utan af velli í leiknum, þ.e. að í hvert einasta skipti sem hún var nálægt því í fyrri hálfleiknum sendi Keflavík hana á línuna. Þar komu einmitt hennar einu (6) stig fyrri hálfleiksins.
Áhlaupið
Þrátt fyrir að þeirra besti leikmaður væri 0-12 í skotum í fyrri hálfleiknum, voru Njarðvíkurstúlkur aðeins 11 stigum undir í hálfleik. Í byrjun seinni hálfleiksins sýndu þær þó hvers þær væru megnugar. Carmen virtist vera að finna fjöl sína aftur (skoraði 17 stig í 3. leikhlutanum) og sóttu þær þá fast að forystu gestanna. Næst komust þær 2 stigum frá Keflavík í byrjun 4. leikhlutans. Lið Keflavíkur hélt haus og sigldi að lokum 6 stiga sigri í höfn.
Tölfræðin lýgur ekki
Njarðvík tók 45 þriggja stiga skot í leiknum og hitti aðeins úr 5 þeirra, 11% nýting. Erfitt hlýtur að teljast að ætla að vinna leiki þar sem að magn þriggja stiga skota er jafn mikið og nýtingin er ekki betri. Keflavík var þó með verri nýtingu en Njarðvík fyrir utan þriggja stiga línuna (8%), en tóku aðeins 23 slík í leiknum.
Hetjan
Í annars mjög jöfnu Keflavíkurliði var Thelma Dís Ágústsdóttir fremst meðal jafningja, skoraði 11 stig, tók 9 fráköst og gaf 5 stoðsendingar á þeim 33 mínútum sem hún spilaði í leiknum.
Viðtöl:




