Leikur Þórs og Tindastóls í 16 liða úrslitum Maltbikarsins sem fram fór í íþróttahöllinni í dag bauð upp á allt sem hægt er að fara fram á í einum körfuboltaleik. ,,Þetta var alvöru leikur allt frá fyrstu sekúndu þetta var svona eins maður sér í lok úrslitakeppninnar þar sem allt er undir. Og svo var náttúrulega verið að spila um norðurlandið og frábært fyrir svæðið að vera komið með tvö nágrannalið til að bjóða fólkinu upp á“ já þannig horfði leikurinn við Benedikt þjálfara í leikslok.
Segja má að þeir ríflega 700 áhorfendur hafi fengið talsvert mikið fyrir peninginn og eins og stemmningin var í stúkunni var ljóst að áhorfendur skemmtu sér hið besta. Og ekki skemmdi að stuðningsmenn Tindastóls fjölmenntu á leikinn drifnir áfram af frábærri trommusveit sem setti svip á leikinn. Þeir veittu stuðningsmönnum Þórs harða keppni og eiga stuðningsmenn beggja liða hrós skilið fyrir alveg geggjaðan stuðning.
Leikurinn fór fjörlega af stað og Tryggvi Snær sendi skýr skilaboð strax í upphafi leik þegar hann varði tvö skor frá Helga Rafni í sömu sókninni og það kunni stúkan að meta. Gestirnir byrjuðu þó leikinn betur og leiddu framan af fyrsta leikhluta en svo jafnaðist leikurinn og heimamenn leiddu eftir fyrsta leikhlutann með þrem stigum 23-20.
Framan af öðrum leikhluta var jafnt á með liðunum og munurinn sjaldnast meiri en 3-4 stig en þegar ein mínútu lifði af öðrum leikhluta var munurinn eitt stig 44-45. Þá kom góður kafli hjá gestunum sem skoruðu 5-0 og þar af flautukörfu í lok leikhlutans. Leikhlutann var Tindastóll með níu stigum 21-30 og leiddu í hálfleik 44-50.
Gestirnir byrjuðu síðari hálfleikinn vel og bættu í forskotið og eftir aðeins tveggja mínútna leik höfðu þeir náð níu stiga forskoti 46-55. Þá tók Þórsliðið við sér og tóku sig á í vörninni og tóku að loka á þær glufur sem gestirnir höfðu fundið. Þór vann leikhlutann 26-21 og þegar loka kaflinn hófst höfðu gestirnir eins stigs forskot 70-71.
Þórsliðinu hafði greinilega tekist afbragðs vel að þetta lekann og á loka kaflanum var skellt í lás, lok, lok og læs. Gestirnir áttu engin svör við frábærum varnarleik enda náðu þeir aðeins að skora 10 stig gegn 23 Þórs. Lokatölur 93-81.
Sigur Þórs var liðsheildarinnar en Darrel Lewis var að mörgum talin besti maður vallarins með 31 stig, 8 fráköst og 5 stoðsendingar. George Beamon var með 21 stig og 10 fráköst, Danero Thomas með 15, Ingvi Rafn 9 stig og 7 stoðsendingar, Ragnar Helgi 6 stig og þeir Þröstur Leó og Tryggvi Snær 4 stig hvor og Sindri Davíðsson 3.
Hjá gestunum voru þeir Antonio Hester með 32 stig og 11 fráköst og Christopher Caird með 27 stig og til gamans má þess geta að þeir kumpánar skoruðu 42 stig af 50 liðs síns í fyrri hálfleik. Pétur Rúnar 9 stig og 5 stoðsendingar, Helgi Rafn 6 og Hannes Ingi 3 stig.
Þar með er ljóst að Þórsarar verða í pottinum fína þegar dregið verður í 8-liða úrslitin næstkomandi þriðjudag
Umfjöllun, myndir, viðtöl / Páll Jóhannesson
Viðtal:




