HomeFréttirKarl má enn bíða eftir þeim þúsundasta

Karl má enn bíða eftir þeim þúsundasta

 
Sjö leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt þar sem Denver Nuggets töpuðu naumlega 100-98 á útivelli gegn Charlotte Bobcats en hefði sigur unnist hefði það orðið þúsundasti sigur NBA þjálfarans George Karl í NBA deildinni. Karl má því enn bíða eftir þessum sögulega áfanga en víst er að hann kemur á næstunni og líklega fyrir jól.
Stephen Jackson var stigahæstur í sigurliði Bobacats í nótt með 23 stig, 9 fráköst og 7 stoðsendingar. Hjá Denver var Chaunsey Billups með 25 stig og 5 stoðsendingar. Billups sem einnig gengur undir nafninu Mr. Bigshot misfórst að jafna leikinn í 100-100 með teigskoti um leið og tíminn rann út og stóð því ekki undir nafni í þetta skiptið.
 
Önnur úrslit næturinnar:
 
Atlanta 116-101 New Jersey
Philadelphia 117-97 Cleveland
Dallas 105-100 Golden State
Houston 97-83 Detroit
Portland 106-99 Phoenix
Lakers 115-108 Washington
 
Ljósmynd/ Einhver bið er enn í þúsundasta sigur George Karl í NBA deildinni.
 
Fréttir
- Auglýsing -