Heil umferð í Iceland Express deild karla í kvöld og stórleikur kvöldsins er vafalítið viðureign KR og Keflavíkur. Mikil spenna er fyrir þessum slag enda tvö heitustu lið landsins um þessar mundir. Vafalítið verður hart barist á öllum vígstöðvum og því fengum við Karl Jónsson boltafræðing úr Skagafirði til þess að rýna í rimmur kvöldsins. Svo sér Karl leika ráðast:
KR-Keflavík
Hér verður um magnaða viðureign að ræða, 50/50 leikur að mínu mati. Valinn maður í hverju rúmi hjá báðum liðum, en ég ætla að tippa á nauman heimasigur 95-92. Sálrænt dálítið sterkt fyrir KR að gera heimavöllinn að óvinnandi vígi (þangað til á laugardaginn!).
Hamar – Njarðvík
Hinn sofandi risi Njarðvík að hjarna við með nýjum þjálfurum og nýjum leikmönnum og ég býst við þeim sterkum í blómabænum í kvöld. Hamarsmenn nýlega búnir að skipta um kana sem ætti að nýtast þeim betur en sá fyrri. Hallast þó að sigri Njarðvíkinga 82-87 að þessu sinni.
Stjarnan – KFÍ
Stjörnumenn verða að fara að sýna hvað í þeim býr, ætli þeir sér einhverja hluti í vetur. KFÍ-liðið mögulega að smella betur saman undir nýjum þjálfara og með nýja leikmenn. En ég spái heimasigri 88-80.
Snæfell – Tindastóll
Mínir menn í Hólminum í kvöld. Sterk vörn á móti sterkri sókn, verður mjög áhugaverð viðureign. Ég spái mínum mönnum auðvitað sigri 80-84.
ÍR – Grindavík
Sá ÍR-inga spila hér á Króknum um daginn og þeir hafa tekið miklum framförum og orðnir hörkulið. Frammistaða Grindvíkinga veltur talsvert mikið á því hvernig nýi kaninn hefur komist inn í leik þeirra sem leikstjórnandi. Ætla að leyfa mér að spá heimasigri 94-90.
Haukar – Fjölnir
Haukarnir með afar skemmtilegt lið. Samheldinn hópur og duglegir strákar ásamt tveimur hörku útlendingum. Fjölnismenn verða að fara að taka útileiki ætli þeir sér í úrslitakeppnina, en ég held að Haukarnir haldi áfram fínu gengi sínu og vinni með 10 stiga mun, 85-75.
Þökkum Karli fyrir spánna og fáum það á hreint í kvöld hvort Karl sjái lengra en aðrir.




