Ólöf Helg Pálsdóttir leikmaður Njarðvíkur og Hildur Sigurðardóttir leikmaður KR urðu fyrir svörum í kvöld að lokinni viðureign KR og Njarðvíkur í Iceland Express deild kvenna. Hildur kvaðst spennt fyrir framhaldinu í A-riðli.
Ólöf sagði betri tíma í vændum hjá Njarðvík enda Julia Demirer að leika sinn fyrsta leik í kvöld og ætti eftir að komast í takt við hópinn.




