Pavel Ermolinskij leikstjórnandi KR var í dag útnefndur besti leikmaður fyrri hluta Íslandsmótsins í Iceland Express deild karla. KR er í 4. sæti deildarinnar um þessar mundir með 14 stig eftir 7 sigra og 4 tapleiki.
Pavel sagði að einstaklingsverðlaun sem þessi hjálpuðu KR liðinu lítið sem ekkert þó vissulega væri hörkufjör að fá svona viðurkenningu eins og hann komst sjálfur að orði.




