HomeFréttirKarfan TV: Davíð dæmdi fjórframlengdan leik í Solna

Karfan TV: Davíð dæmdi fjórframlengdan leik í Solna

 
Körfuknattleiksdómarinn Davíð Kristján Hreiðarsson var einn fjögurra íslenskra dómara sem tók þátt í Norðurlandamótinu í Solna en ásamt honum dæmdu þeir Björgvin Rúnarsson, Sigmundur Már Herbertsson og Davíð Tómas Tómasson. Kristinn Óskarsson var einnig með í för og tók þátt í vinnu við eftirlit með dómurum á mótinu en þegar höfum við greint frá því á Karfan.is að Kristinn hafi hug á því að snúa sér inn á þessa braut eftir að hann lagði FIBA dómgæslubúninginn á hilluna.
 
Karfan TV ræddi við Davíð Kristján um dómgæsluna í þriggja dómara kerfinu og margt fleira þegar við náðum í skottið á honum í Solnahallen en síðar á mótinu lenti Davíð í miklu ævintýri er hann dæmdi fjórframlengdan leik í viðureign Svía og Dana í flokki U18 ára kvenna þar sem Danir höfðu betur og sendu Svía í bronsleikinn.
 
Fréttir
- Auglýsing -