HomeFréttirKamil Novak ræddi við Körfuna um stækkun Eurocup, aðdáun á íslenskum körfubolta...

Kamil Novak ræddi við Körfuna um stækkun Eurocup, aðdáun á íslenskum körfubolta og tækifærin hér ,,Hvernig getur svo lítil þjóð keppt á svona stóru sviði?”

Ísland hýsir í vikunni fjölmenna samkomu körfuboltaleiðtoga, en um 150 fulltrúar frá 48 löndum koma saman hér á landi dagana 15.–16. maí til að ræða málefni íþróttarinnar á alþjóðavettvangi.

Um er að ræða vinnufundi og ársþing FIBA Europe, og er það mikil viðurkenning fyrir körfuknattleikshreyfinguna hér heima að fá að halda þennan stóra viðburð sem skipulagður er á vegum Kamil Novak, framkvæmdastjóra sambandsins.

Karfan hitti Kamil fyrir helgina og ræddi við hann um fundina sem fram fara nú um helgina.

Fréttir
- Auglýsing -