Stjarnan heimsækir KR í lokaumferð Dominos deildar karla í kvöld. Justin Shouse leikmaður Stjörnunnar hefur misst af síðustu leikjum liðsins vegna meiðsla en er á skýrslu í dag.
Hann hefur ekki verið með liðinu frá því í sigrinum á Keflavík þann 27. janúar síðastliðinn og hafði verið meiddur í nokkurn tíma á undan því. Ljóst er að Justin er gríðarlega mikilvægur fyrir liðið þar sem bröguglega hefur gengið hjá Stjörnunni í hans fjarveru. Hann er með 17 stig 4,5 fráköst og 4,9 stoðsendingar að meðaltali í leik og stjórnar sóknarleik liðsins eins og herforingi.
Stjarnan getur stolið öðru sæti deildarinnar með sigri en þá þarf Tindastóll að tapa gegn Haukum í Hafnarfirði. Það er klárt mál að innkoma Justins hefur heilmikið með möguleika Stjörnunnar að gera og þá sérlega þegar í úrslitakeppnina kemur. Marvin Valdimarsson er þó meiddur í dag en óvíst er um alvarleika þeirra meiðsla að svo stöddu.




