spot_img
HomeFréttirJúlíus Orri: Með sætari sigrum sem ég hef upplifað

Júlíus Orri: Með sætari sigrum sem ég hef upplifað

Grindavík heimsótti Þór Akureyri í gærkvöldi. Gestirnir leiddu nánast allan leikinn. Þórsarar sem róa lífróður í deildinni áttu hreint magnaða endurkomu í lok leiksins. Jamal Palmer kláraði leikinn með rúmar 6 sekúndur eftir af leiknum fyrir Þór og tryggði sigurinn.

Þór á þar með enn möguleika á að tryggja sæti sitt í deildinni með sigri í lokaumferðinni og þurfa þá að treysta á að Valur tapi á meðan. Grindavík náði hinsvegar ekki að tryggja sæti í úrslitakeppninni.

Hérna er meira um leikinn

Þór Tv ræddi við Júlíus Orra Ágústson, leikmann Þórs, eftir leik á Akureyri.

Fréttir
- Auglýsing -