spot_img
HomeFréttirJulia Demirer til liðs við Njarðvíkinga

Julia Demirer til liðs við Njarðvíkinga

 
Sverrir Þór Sverrisson þjálfari Njarðvíkurkvenna hefur fengið til liðs við grænar miðherjann Juliu Demirer sem er Íslendingum að góðu kunn enda miðherji í silfurliði Hamars á síðustu leiktíð. Upphaflega stóð til að Julia myndi fylla skarð Ditu Liepkalne sem hefur verið meidd lungann af leiktíðinni en Dita er á batavegi og Julia því komin í grænt sem viðbótarleikmaður.
,,Okkur vantaði sterkan leikmann í teiginn því við erum með margar ungar sem hafa spilað mikið og skilað fínum mínútum en okkur vantaði þessa stöðu og hefur vantað í allan vetur,” sagði Sverrir Þór í samtali við Karfan.is.
 
,,Julia er komin til að hjálpa okkur í lokabaráttunni, við erum að reyna að komast í úrslitakeppnina, á sama tíma er stutt í botninn og við erum líka í fjögurra liða úrslitum í bikarkeppninni,” sagði Sverrir og ætti Julia að geta hjálpað þar til enda með 19,8 stig, 13,3 fráköst og 2,2 stoðsendingar í 17 deildarleikjum með Hamri á síðustu leiktíð.
 
Julia er komin til landsins og verður með Njarðvíkingum gegn KR í kvöld.
Fyrir hjá liðinu eru erlendu leikmennirnir Shayla Fields og Dita Liepkalne.
 
Mynd/ Sævar Logi: Julia mun styrkja teig Njarðvíkinga til muna
 
Fréttir
- Auglýsing -