spot_img
HomeFréttirJR Smith svangur í miðjum leik

JR Smith svangur í miðjum leik

Já hann JR Smith verður seint talinn skarpasti hnífurinn í skúffunni. Uppátæki hans í NBA deildinni virðast hætta að koma manni á óvart eftir skrautlegan 12 ára feril. Allt frá því að vera í banni vegna slagsmála innan vallar út í það að vera dæmdur í fangelsi vegna ökulagabrota þá virðist Smith alltaf getað toppað sig.  Og nú í einum af æfingaleikjum CAVS brá kappinn sér uppí stúku og verslaði sér kandífloss af söludömu sem þar gekk um með slíkt. Reyndar var Smith ekki í búning þar sem hann er meiddur (líkt og 5 aðrir leikmenn CAVS) aftaní læri en var samt sem áður á bekk liðsins.  Nú bíðum við spennt eftir næsta uppátæki kappans. 

 

 

 

Fréttir
- Auglýsing -