7:00
{mosimage}
Spánverjinn Jorge Garbajosa sem leikið hefur með NBA liðinu Toronto Raptors hefur ákveðið að segja skilið við liðið eftir 2 ár með félaginu. Garbajosa sem var meiddur í allan vetur var valinn í spænska landsliðið sem er á leið á Ólympíuleikana í ágúst og ætlar hann að einbeita sér að því og sjá svo til hvað verður í haust.
Garbajosa náði að leika 74 leiki með Toronto og skora 8 stig að meðaltali í leik.
Mynd: www.ya.com