spot_img
HomeFréttirJónas Jónmundsson tekur við sem formaður KKD Hauka

Jónas Jónmundsson tekur við sem formaður KKD Hauka

Kjartan Freyr Ásmundsson er hættur sem formaður KKD Hauka og við starfanum hefur tekið Jónas Jónmundsson en þetta varð ljóst eftir aðalfund félagsins í gærkvöldi. Á Vísir.is segir Jónas að Kjartan hafi ekki gefið kost á sér til áframhaldandi starfa.

Af Vísir.is:

„Hann var búinn að gefa það í skyn að hann væri tilbúinn að víkja. Hann var búinn að nefna það. Það voru engin læti í þessu,“ segir Jónas en litlar breytingar voru gerðar á stjórninni.

Það hefur verið talsvert havarí í kringum skíðaferð þjálfara karlaliðs Hauka, Ívars Ásgrímssonar, en hann mun ekki stýra Haukum í gríðarlega mikilvægum leik á föstudaginn vegna ferðarinnar. Jónas segir að hans framboð tengist því máli ekki neitt.

Sjá fréttina í heild sinni á Vísir.is

Fréttir
- Auglýsing -