HomeFréttirJón, Jón, Haukur, Hlynur og Pétur

Jón, Jón, Haukur, Hlynur og Pétur

 

 

Mikið hefur verið og er að fara gerast hjá landsliði okkar íslendinga þetta árið. Fyrst voru það Smáþjóðaleikarnir, sem voru hér heima í byrjun júní. Þar sem að liðið náði öðru sæti. Næst er það hinsvegar lokamót Eurobasket í Berlín nú í september. Við það tilefni fannst okkur kjörið að hafa uppi á nokkrum fyrrum landsliðsmönnum Íslands og fá að spyrja þá að nokkrum spurningum.

 

Næstur er það KR og Ármaðurinn Jón Sigurðsson, en hann spilaði 120 landsleik með liðinu frá árinu 1968-1984.

 

 

Nafn:

Jón Sigurðsson

 

Ferill:

Ármann og KR tímabilið 1966-1983 og Víkverjar árin 1987-1989

 

Félagslið / tímabil:

Ég lék með Ármanni 1966-1977 og varð Íslandsmeistari 1975. Síðan lék ég með KR árin 1978-1983 og varð Íslandsmeistari 1978 og 1979.

 

Landsliðsferill:

Ég lék samtals 120 landsleiki á 15 ára landsliðsferli frá 1968 til 1983.

 

Hvernig var tilfinningin að vera valinn í landslið fyrst?

Það var nokkuð óvænt en skemmtileg tilfinning að vera valinn í landsliðið, nýorðinn 17 ára og framundan Norðurlandamótið Polar Cup 1968 sem var haldin heima í Laugardalshöllinni.

 

Hvernig var fyrsti leikur þinn fyrir Ísland?

Fyrsti landsleikurinn er alltaf minnisstæður en hann var við Noreg í Laugardalshöllinni 1968 sem við unnum nokkuð örugglega og skoraði ég 6 stig á þeim 6 mínútum sem ég spilaði.

 

Var móðir þín viðstödd viðureignina?

Móðir mín fór aldrei á leikina mína en fylgdi mér í hjarta sínu sagði hún. Hins vegar fylgdi faðir minn mér alltaf og mætti á nær alla leiki á löngum ferli mínum á Íslandi.

 

Hver var eftirminnilegasti leikurinn sem þú lékst fyrir Ísland?

Það voru svo margir minnisstæðir landsleikir og erfitt að velja á milli þeirra en ég skal nefna tvær viðureignir. Það var þegar við unnum landslið Finna í fyrsta skipti. Leikurinn var í Keflavík og var komið fram í þriðju framlengingu, skorið jafnt og tíminn alveg að renna út, þá skaut ég boltanum frá miðju og hitti beint ofan í og við sigrum. Síðan voru það tveir landsleikir sem við unnum á A-landsliði Frakka í Laugardalshöllinni með Pétur Guðmundsson í liðinu. Þá sagði landsliðsþjálfari Frakka eftir leikina að Ísland hefði reitt nokkrar fjaðrir af hana Frakkanna en haninn er íþróttatákn Frakkanna í körfubolta.

 

Hver var sá besti leikmaður sem þú spilaðir með fyrir landsliðið og afhverju?

Pétur Guðmundsson er langbesti körfuknattleiksmaður Íslands frá upphafi. Hann var mikið meira en bara stór því hann hafði kjark, þor og hjarta á réttum stað. Fullkominn skotstíl, fallegar sendingar, var mjög útsjónarsamur leikmaður og með gott auga fyrir samspili.

 

 

Hversu ánægður varðst þú við það að fylgjast með landsliðinu tryggja sér sæti á sínu fyrstu lokum stórmóts?

Ég fylgdi landsliðinu í huga og hjarta á öllum þeim stórmótum sem þeir spiluðu á. Það var aldrei spurning hvort bara spurning hvenær þeir mundu ná þessu marki og varð ég mjög ánægður með liðið þegar það tókst.

 

Afhverju heldur þú að það hafi loksins tekist fyrir liðið að tryggja sér seðilinn á lokamót?

Körfuboltinn á Íslandi hefur tekið stórstígum framförum á síðustu árum. Það gróskumikla stúlkna-, drengja- og unglingastarf sem hefur verið unnið hjá öllum körfuboltaliðum landsins og það gríðarmikla og góða starf hjá meistaraflokkum félaganna hefur skilað þessum árangri. Ekki síst að við eigum mjög frambærilega atvinnumenn í körfuboltanum í nær öllum okkar nágrannalöndum. Allt þetta hefur gert gæfumuninn.

 

Hvernig heldur þú að Íslandi eigi eftir að vegna í þessum sterka riðli sem þeir í drógust?

Þetta verður erfiður róður hjá íslenska landsliðinu en mjög skemmtilegt tækifæri fyrir strákanna að etja kappi við bestu leikmenn í Evrópu. Ég held að bestu möguleikar okkar séu á móti Tyrkjum en á móti kemur að það er síðasti leikurinn og þá reynir á úthald, styrk og getu leikmanna. Einnig gætu þeir komið Þjóðverjum á óvart í fyrsta leik og við erum með gott “record” á móti þeim þ.e. einn leikur við Þjóðverja sem við unnum nokkuð sannfærandi á stórmóti í Kaupmannahöfn.

 

Ef þú fengir að senda einn fyrrum leikmann Íslands með liðinu á Evrópumótið, hver væri það þá og hvernig myndi hann hjálpa liðinu?

Pétur Guðmundsson, hann yrði gríðarlegur styrkur fyrir liðið því hann mundi eiga bókstaflega teiginn og draga saman vörn andstæðinganna og þannig opna fyrir skytturnar okkar á 3ja stiga línunni.

 

Hvert telur þú vera, fengir þú að velja lið allra tíma, byrjunarliðs uppstilling íslenska landsliðsins?

Jón Sigurðsson, Jón Arnór Stefánsson, Haukur Helgi Pálsson, Hlynur Bæringsson og Pétur Guðmundsson

 

Heldur þú, að þú sjálfur sem leikmaður, upp á þitt besta, værir á leið með íslenska liðinu til Berlín næsta vor?

Já, tvímælalaust.

 

 

Hvaða ungi leikmaður, sem ekki hefur spilað áður fyrir landsliðið, myndir þú veðja á að ætti eftir að spila yfir 50 landsleiki í framtíðinni?

Ég mundi segja að KR-ingurinn Kristófer Acox eigi eftir að gera þetta.

 

Hverja telur þú tvo mikilvægustu leikmenn íslenska liðsins í dag og afhverju? 

Jón Arnór er mjög mikillvægur leikmaður bæði fljótur, útsjónarsamur, hittinn með afburðum og þorir að taka síðasta skotið. Hlynur er einnig mjög mikilvægur og þjappar vörninni saman, tekur fráköst af hærri leikmönnum, skorar mikilvægar körfur og er akkerið í liðinu.

 

Á að bregða landi undir fót og fylgja liðinu til Berlín á EM?

Að sjálfsögðu, ég pantaði miða á EM leikina, flugmiða til Berlin og hótel um leið og liðið komst á EuroBasket 2015. Ég hlakka mikið til.

Fyrri viðmælendur:Pétur GuðmundssonGuðjón SkúlasonGuðmundur Bragason

                      Hermann Hauksson

                      Tómas Holton

                      Valur Ingimundarson

                      Jón Kr. Gíslason

                      Einar Bollason

                      Axel Nikulásson

                      Jón Norðdal Hafsteinsson

Fréttir
- Auglýsing -