14:50
{mosimage}
(Jón Halldór Eðvaldsson)
Liðin sem berjast munu um Subwaybikarmeistaratitilinn í kvennaflokki þann 15. febrúar næstkomandi mætast í Iceland Express deild kvenna í Vesturbænum í kvöld. Keflavík hefur unnið bikarinn 11 sinnum í kvennaflokki en KR 9 sinnum og því fá körfuknattleiksáhugamenn forsmekkinn af því sem koma skal í Höllinni eftir rúma viku. KR tekur á móti Keflavík kl. 19:15 í kvöld og af því tilefni hafði Karfan.is samband við Jón Halldór Eðvaldsson þjálfara Íslandsmeistara Keflavíkur sem segir að allt geti nú gert á lokasprettinum. Fyrir leiki kvöldsins hefur Keflavík 24 stig í 2. sæti A-riðils en KR hefur 16 stig í fjórða og síðasta sæti riðilsins.
Nú er baráttan að harðna og úrslitakeppnin handan við hornið. Hvernig er Keflavíkurliðið stemmt fyrir kvöldinu og svona almennt fyrir lokasprettinn í deildinni?
Það er klárt að þetta er farið að harðna, varðandi leikinn í kvöld þá erum við bara í fínum málum, við erum full tilhlökkunar að fara og spila við KR í kvöld enda talað um að KR sé stærsti og flottasti klúbbur landsins. Varðandi lokasprettinn þá erum við spenntar, þetta verður fróðlegt og skemmtilegt.
Ertu sammála þessari fullyrðingu um KR?
Ég er sammála því að KR er bæði stór og flottur klúbbur.
Keflavík er fjórum stigum á eftir Haukum. Getið þið náð þeim að stigum eða verðið þið, og munið þið, bæta við ykkur erlendum leikmanni?
Það getur allt gerst, það þarf hinsvegar allt að ganga upp. Ég trúi því að við getum það en eins og ég sagði þá þarf allt að ganga upp. Þurfum við að bæta við okkur erlendum leikmanni til þess? ég trúi því að við getum þetta án erlends leikmanns en það þarf allt að smella, varðandi spurninguna um það hvort við bætum við okkur erlendum leikmanni þá er svarið nei.
Bryndís Guðmundsdóttir hefur verið að leika nokkuð undanfarið eftir erfið meiðsli. Verður hún komin í sama gamla formið fyrir úrslitakeppni?
Bryndís er búin að vera að koma meira og meira inní þetta hjá okkur og það heldur bara áfram, Bryndís er á góðri leið með að komast í form ég ætla rétt að vona að hún verði komin í sama gamla formið fyrr en það.






