HomeFréttirJón byrjar heima en Haukur úti

Jón byrjar heima en Haukur úti

ACB deildin hefur gefið út keppnisdagatalið fyrir næstu leiktíð á Spáni. Jón Arnór Stefánsson og CAI Zaragoza byrja á heimavelli en Haukur Helgi Pálsson og félagar í Assignia Manresa byrja á útivelli.
Deildarkeppnin í ACB deildinni hefst þann 29. september næstkomandi og er spilað 29. september og 30. september í fyrstu umferð. CAI Zaragoza tekur á móti liði Safe Work þann 29. september en Assignia Manresa mætir Blusens Monbus sama dag.
 
Stórlið Barcelona fær Valladolid í heimsókn í fyrstu umferð og Real Madrid tekur á móti Unicaja.
 
Fyrsti Íslendingaslagur Jóns og Hauks millum Zaragoza og Manresa er þann 9. desember á heimavelli Manresa en liðin mætast svo eftir áramót á heimavelli Zaragoza eða þann 5. maí 2013.
 
 
Mynd/ [email protected]: Jón Arnór Stefánsson og CAI Zaragoza hefja næstu leiktíð í ACB deildinni á heimavelli.
 
  
Fréttir
- Auglýsing -