spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaJón Axel stoðsendingahæstur gegn Alba Berlin

Jón Axel stoðsendingahæstur gegn Alba Berlin

Jón Axel Guðmundsson og Fraport Skyliners máttu þola stórt tap í dag fyrir Alba Berlin í þýsku úrvalsdeildinni, 60-94. Eftir leikinn eru Skyliners í 9. sæti deildarinnar með 10 sigra og 14 tapað það sem af er tímabili.

Á rúmum 28 mínútum spiluðum skilaði Jón Axel 8 stigum, 4 fráköstum, 8 stoðsendingum og 4 stolnum boltum. Næsti leikur Skyliners í deildinni er 28. mars gegn Braunschweig.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -