spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaJón Axel og Alicante með öruggan heimasigur

Jón Axel og Alicante með öruggan heimasigur

Jón Axel Guðmundsson og HLA Alicante lögðu Amics Castello nokkuð örugglega í dag í Leb Oro deildinni á Spáni, 86-64.

Á rúmum 19 mínútum spiluðum í leiknum var Jón Axel með fjögur stig, frákast, fjórar stoðsendingar og stolinn bolta.

Alicante eru eftir leikinn í 8. sæti deildarinnar með tíu sigra og sjö töp það sem af er tímabili.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -