spot_img
HomeFréttirJón Axel með tvennu gegn North Carolina

Jón Axel með tvennu gegn North Carolina

Jón Axel Guðmundsson heldur áfram að gera flotta hluti fyrir Davidson háskólann. Í kvöld tapaði liðið gegn stórliði North Carolina.

Íslendingurinn var með tvöfalda tvennu í tilefni dagsins og endaði með 15 stig og 11 fráköst. Hann var stigahæstur í liði Davidson ásamt Luke Frampton.

Þetta er þriðja tvenna Jóns Axels sem er í stóru hlutverki hjá liði Davidson. Lokastaðan í leik kvöldsins var 82-60 fyrir North Carolina.

Fréttir
- Auglýsing -