Jón Axel Guðmundsson og Crailsheim Merlins töpuðu í dag fyrir Bayern Munchen í þýsku úrvalsdeildinni, 93-64.
Eftir leikinn eru Crailsheim í 9. sæti deildarinnar með 12 sigra og 10 töp það sem af er tímabili.
Á 32 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Jón Axel 25 stigum, 2 fráköstum og stoðsendingu.
Næsti leikur Jóns Axels og Crailsheim er þann 1. apríl gegn Hamburg Towers.