spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaJón Axel með 15 stig gegn Hamburg Towers

Jón Axel með 15 stig gegn Hamburg Towers

Jón Axel Guðmundsson og Fraport Skyliners máttu þola tap í úrvalsdeildinni í Þýskalandi í dag fyrir Hamburg Towers, 98-70. Skyliners eftir leikinn í 9.-11. sæti deildarinnar með fimm sigra og átta töp það sem af er tímabili.

Á rúmri 31 mínútu spilaðri skilaði Jón Axel 15 stigum, 3 fráköstum, 3 stoðsendingum og stolnum bolta. Næsti leikur Skyliners í deildinni er gegn Bonn þann 31. janúar.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -