Jón Arnór Stefánsson núverandi Íþróttamaður ársins er einn af 10 efstu í kjöri Íþróttamanns ársins og er það í 10. skipti sem Jón Arnór er meðal 10 efstu í kjörinu. Þetta var gert kunngjört nú í bítið en það eru félagar í Samtökum íþróttafréttamanna sem kjósa líkt og venjulega. Jón Arnór kemst þar með í föngulegan hóp íþróttamanna sem hafa náð þessum áfanga eða sum sé að komast 10 sinnum á lista 10 efstu en þar á meðal eru t.a.m Ólafur Stefánsson bróðir Jóns.
Ef eitthvað hefur Jón Arnór jafnvel átt betra ár ef miðað sé við árið 2014. Jón lék með liði Malaga fram á vor og fór þar með liðinu alla leið í undan úrslit þar sem Malaga var í raun hársbreidd frá því að slá risana úr Katalóníu, Barcelona úr keppni í oddaleik. Jón Arnór fór svo með landsliðinu á Eurobasket í Berlín sælla minninga og leiddi þar liðið. Gegn nánast öllum mótherjum stóðu drengirnir í liðinu sig eins og hetjur þrátt fyrir tap og eftir mót var liðið hyllt líkt og um Evrópumeistarana sjálfa væri að ræða. Ekki bara af stuðningsmönnum Íslands heldur voru stuðningsmenn annara þjóða komnir í stúkuna með íslenska fánann. Tíu mínútum eftir að Eurobasket lauk kvittaði Jón svo undir glóðvolgan samning við lið Valencia. Jón Arnór sem hóf tímabilið þar á undan með Malaga taplaus langt fram á ár hefur nú endurtekið þann leik með Valencia og þegar þessi orð eru rituð hefur Valencia ekki tapað leik og eru 21-0 það sem af lifir vetri í öllum keppnum.
Það ætti svo að koma fáum á óvart að karla landslið Íslands eru svo tilnefndir sem Lið ársins. Liðið líkt og segir hér að ofan fór á Eurobasket í Berlín. Lokakeppni í fyrsta skipti um Evrópumeistaratitilinn í hugsanlega allra sterkasta riðli sem dreginn hefur verið í keppninni frá upphafi. Liðið stóð sig vel þrátt fyrir að tapa öllum leikjunum og þeim síðasta naumlega eftir framlengingu gegn fyrna sterkum Tyrkjum.
Og við þetta bætandi þá er nokkuð ljóst að ef samtök íþróttafréttamanna væru með val á stuðningsmönnum ársins þá væri það í raun sjálfvalið. Stuðningsmenn Íslands í Berlín voru landi og þjóð til sóma í einu og öllu. Umtalið í Þýskalandi eftir mót var slíkt að heimamenn væru í raun alltaf til í að fá Íslendinga í sínum riðli í hvaða íþrótt sem er. Stuðningsmennirnir studdu liðið í gegnum móti með slíkum árangri að íþróttamðilar hvaðan af í álfunni fjölluðu um.