HomeFréttirJón Arnór til CAI Zaragoza

Jón Arnór til CAI Zaragoza

 
 
Jón Arnór Stefánsson, landsliðsmaður í körfuknattleik, mun leika áfram á meðal þeirra bestu í Evrópu í ACB-deildinni á Spáni. Jón er búinn að semja við CAI Zaragoza sem hafnaði í 10. sæti á síðustu leiktíð og rétt missti af úrslitakeppninni en Jón lék síðustu tvö árin með CB Granada. Morgunblaðið og mbl.is greina frá þessu í dag.
„Þeir eru búnir að styrkja hópinn og ef við náum vel saman gæti liðið komist í úrslitakeppnina. Ég geri ráð fyrir því að mitt hlutverk verði mjög svipað og hjá Granada þar sem ég spilaði um 25 mínútur í leik. Ég mun spila sem skotbakvörður en gæti einnig spilað eitthvað í stöðu framherja ef vel gengur,“ sagði Jón Arnór í samtali við Morgunblaðið í gær en hann hefur verið eftirsóttur á undanförnum dögum.
 
Nánar er rætt við Jón í Morgunblaðinu í dag
Fréttir
- Auglýsing -