8:51
{mosimage}
Jón Arnór Stefánsson spilaði í gær sinn fyrsta leik með ítalska liðinu Benetton Basket Treviso þegar liði vann Carife Ferrara 87-68 í æfingaleik.
Jón Arnór skoraði 10 stig í leiknum og fékk hrós á heimasíðu Benetton fyrir að hafa spilað vel í frumraun sinn með liðinu.
Jón Arnór mun spila sinn fyrsta alvöru leik með Benetton Basket Treviso 7. maí næstkomandi en liðið á tvo leiki eftir af deildarkeppninni en síðan hefst úrslitakeppnin.
Mynd: [email protected]



