Jón Arnór Stefánsson og Haukur Pálsson léku báðir með sínum liðum í spænsku deildinni í gær. Jón Arnór var í sigurliði CAi Zaragoza sem vann öruggan sigur á Unicaja, 76-59. Jón Arnór spilaði 30 mínútur í leiknum, mest allra á vellinum og skoraði 6 stig ásamt því að gefa 3 stoðsendingar. Zaragoza eru eftir leikinn í 7 sæti deildarinnar með 12 sigra en 4. til 11. sæti deildarinnar er hnífjöfn þar sem aðeins munar 4 stigum á liðunum.
Haukur Helgi Pálsson lék með liði sínu Manresa gegn Gran Canaria og vann nokkuð öruggan 14 stiga sigur, 63-77. Haukur spilaði aðeins 4 mínútur í leiknum og tókst ekki að skora. Lið hans er eins og er í 11. sæti deildarinnar með 11 sigra og 11 töp.
Hægt er að kynna sér gang mála í spænsku deildinni hér http://www.acb.com/



