14:45
{mosimage}
Jón Arnór Stefánsson og félagar í Lottomatica Roma heimasækja Montepaschi Siena í kvöld í fimmta leik liðanna í úrslitum ítalska boltans. Siena leiðir 3-1 í einvíginu og verða Romamenn því að vinna í kvöld til að halda í vonina. Það gæti þó reynst erfitt þar sem Siena hefur ekki tapað heimaleik í allan vetur.
Romamenn sýndu þó á þriðjudag að þeir geta unnið Siena og leiki þeir sem hópur í kvöld en ekki einstaklingar þá er aldrei að vita hvað gerist. Sigur í kvöld myndi efla þá enn frekar og þá er ekki ólíklegt að einvígið fari í oddaleik.
Hæg er að fylgjast með lifandi tölfræði útsendingu hér.
Mynd: La Gazzetta




