Mikið hefur verið og er að fara gerast hjá landsliði okkar íslendinga þetta árið. Fyrst voru það Smáþjóðaleikarnir, sem voru hér heima í byrjun júní. Þar sem að liðið náði öðru sæti. Næst er það hinsvegar lokamót Eurobasket í Berlín nú í september. Við það tilefni fannst okkur kjörið að hafa uppi á nokkrum fyrrum landsliðsmönnum Íslands og fá að spyrja þá að nokkrum spurningum.
Næstur er það Axel Nikulásson, en meðfram því að vinna titla fyrir bæði Keflavík og KR spilaði hann einnig eina 63 landsleiki fyrir Íslands hönd á árunum 1980-1992.
Nafn: Axel A. Nikulásson
Ferill:
Hóf ferilinn í Keflavík þegar Ólafur Jónsson skólastjóri skikkaði nokkra stráka úr mínum árgangi á æfingar – hugsanlega til að þreyta þá frá óknyttum í kennslustofunni. Spilaði með meistaraflokki Keflavíkur frá 1979 og komst liðið upp í úrvalsdeild í þriðju tilraun. Fyrsta árið okkar þar, vorum við svo hársbreidd frá því að næla okkur í Íslandsmeistaratitil en horfðum á eftir titlinum til Valsmanna. Fyrsti titillinn koma svo 10 árum eftir að meistaraflokksferillinn hófst, vorið 1989.
Félagslið / tímabil:
Keflavík 1979-1983, 1987-1989
East Stroudsburg University 1983-1986
UMFG 1985 – 1 leikur í bikarkeppni um áramót þegar ég skaust heim í jólafrí.
KR 1989 – 1992
Reynir, Sandgerði 3 leikir 1993
Landsliðsferill:
Fyrsti landsleikurinn haustið 1980 gegn Kína (sem vannst) og síðasti leikurinn 1992 gegn Rúmeníu (sem tapaðist). Ég spilaði að mig minnir eitthvað um 70 leiki en misssti af nokkrum leikjum vegna meiðsla og datt út úr myndinni þann tíma sem ég var í Bandaríkjunum.
Hvernig var tilfinningin að vera valinn í landslið fyrst?
Þetta var mjög spennandi tilfinning en óraunveruleg þar sem ég var sá fyrsti sem var valin úr Keflavík og var auk þess ekki í efstu deild – fyrir vikið kom mjög á óvart að Einar Bollason skyldi velja mig.
Hvernig var fyrsti leikur þinn fyrir Ísland?
Ég man ekki eftir því að vera stressaður en við Valur Ingimundason vorum báðir að leika okkar fyrsta leik. Ég koraði 2 stig eftir sóknarfrákast og get ekki sagt að ég hafi heillað áhorfendur með tilþrifum.
Var móðir þín viðstödd viðureignina?
Nei.
Hver var eftirminnilegasti leikurinn sem þú lékst fyrir Ísland?
Sigur gegn Svíum á Norðurlandamóti í Noregi var skemmtilegur. Stórtap gegn Hollendingum í vináttuleik ytra ca. 1981 er líka eftirminnilegur því við vorum svo klárlega rassskelltir að ég var í einhverja daga að átta mig á því hvað hægt væri að spila illa. Sú tilfinning endurtók sig svo 1992 gegn Króatíu.
Hver var sá besti leikmaður sem þú spilaðir með fyrir landsliðið og afhverju?
Ég verð að segja Símon Ólafsson sem maður lærði mikið af á fyrstu árum mínum með landsliðinu. Hann átti aldrei slæman dag. Við vorum báðir undir körfunni og þá sá maður vel hve góður leikmaður hann var. Pétur Guðmundsson var besti leikmaður Íslands á þessum tíma en hann var ekki með á upphafsárum mínum í landsliðinu vegna reglna um atvinnumenn. Fyrir vikið spilaði ég tiltölulega fáa leiki með Pétri.
Hversu ánægður varðst þú við það að fylgjast með landsliðinu tryggja sér sæti á sínu fyrstu lokum stórmóts?
Það er nær útilokað að lýsa því hversu ánægður maður og hversu fjarlægur þessi möguleiki var þegar ég byrjaði. Þetta er stórt afrek í íþróttasögunni og nær útilokað að bera það saman við aðrar liðsíþróttir.
Afhverju heldur þú að það hafi loksins tekist fyrir liðið að tryggja sér seðilinn á lokamót?
Mér sýnist þetta vera blanda af mörgum þáttum. Við eigum sterka og tæknilega leikmenn sem voru tilbúnir að fórna sér fyrir liðið. Barátta hefur alltaf verið til staðar í íslenskum landsliðum en nú voru við með allt annað sem þurfti.
Hvernig heldur þú að Íslandi eigi eftir að vegna í þessum sterka riðli sem þeir í drógust?
Ég á ekki von á því að við sigrum í neinum leik. Vill samt ekki útiloka að okkur takist að stela einum ef andstæðingurinn mætir ekki tilbúinn. Ég er þess hinsvegar fullviss um að liðin sem við spilum á móti verða mjög fegin að ljúka leik gegn okkar strákum sem munu berjast eins og ljón allt til loka.
Ef þú fengir að senda einn fyrrum leikmann Íslands með liðinu á Evrópumótið, hver væri það þá og hvernig myndi hann hjálpa liðinu?
Augljósa svarið væri Pétur Guðmundsson, en ég er ekki viss um að hann yrði nýttur eins vel og hægt væri. Ég myndi því kalla til Símon Ólafsson sem er ekki ólíkur leikmaður og Hlynur Bæringsson og getur dekkað upp fyrir sig.
Hvert telur þú vera, fengir þú að velja lið allra tíma, byrjunarliðs uppstilling íslenska landsliðsins?
Bakverðir: Jón Arnór Stefánsson og Jón Sigurðsson/Jón Kr. Gíslason
Framverðir: Hlynur Bæringsson, Haukur Pálsson
Miðherji: Pétur Guðmundsson
Heldur þú, að þú sjálfur sem leikmaður, upp á þitt besta, værir á leið með íslenska liðinu til Berlín næsta vor?
Nei það tel ég mjög ólíklegt.
Hver væri þín helsta samkeppni og myndir þú taka hann/þá?
Ég væri hugsanlega að takast á við stóru mennina sem einhverra hluta vegna verma varamannabekkinn flestum stundum. Ég er viss um að ég get setið jafn fast og fagmannlega og þeir.
Hvaða ungi leikmaður, sem ekki hefur spilað áður fyrir landsliðið, myndir þú veðja á að ætti eftir að spila yfir 50 landsleiki í framtíðinni?
Gunnar Ólafsson úr St. Francis College. Ég hefði viljað sjá hann í æfingahópnum í sumar.
Hverja telur þú tvo mikilvægustu leikmenn íslenska liðsins í dag og afhverju?
Jón Arnór Stefánsson sem er kjölfesta liðsins og sá eini sem hefur verið á stærsta sviðinu í körfuboltanum. Hlynur verður að vera klár í slaginn því hann er lágvaxinn í þessum slag og við megum ekki missa hann í meiðsli eða ofþreytu.
Á að bregða landi undir fót og fylgja liðinu til Berlín?
Því miður kemst ég ekki, en mun líma mig við sjónvarpið og hvetja strákana.
Fyrri viðmælendur:Pétur GuðmundssonGuðjón SkúlasonGuðmundur Bragason




