spot_img
HomeFréttirJón Arnór: Ætlum að taka Eistana í Höllinni

Jón Arnór: Ætlum að taka Eistana í Höllinni

 Jón Arnór Stefánsson bakvörður landsliðsins var að vonum svekktur með leikinn gegn Svartfellingum í gær og tjáði Karfan.is í dag að liðið saknar vissulega Pavel Ermóljinski. " Við byrjuðum leikinn illa og lendum undir strax og vorum að tapa boltanum mikið" 
Jón kvað hinsvegar Svartfellinga alls ekki ósigrandi lið fyrir Ísland. " Við getum vel unnið Svartfellinga heim ameð góðum leik að mínu mati. Við "mötchum" vel uppá móti þeim og getum keyrt á þá sóknarlega. Það er virkilega gaman að fylgjast með okkar leik á köflum þegar sjálfstraustið er gott og við gerum hlutina eftir getu.  En í þessum leik lendum við undir í hálfleik með 16 stigum og erum að spila mjög illa. Svo komum við inn í seinni háflleik og spilum hann á pari. Við þurfum að byrja leikina betur." sagði Jón Arnór.  
 
En hvað eru svona leikir að gefa þessu íslenska liði?
"Við erum með reikning í reynslubankanum og erum að leggja þar inn háar upphæðir. Það er ótrúlega gefandi að taka þátt í þessu verkefni. Hópurinn er mjög samrýmdur og við keppumst að því saman að gera þetta landslið betra og umgjörðina í kringum það.  Ég tel það vera að heppnast vel.  Ég finn að það er að verða til ákveðið hjá liðinu.   Við erum farnir að þekkja hvorn annan betur og skilja hvað við getum  og getum ekki.  það er mikið hjarta í þessu liði og við erum einfaldlega góðir í körfubolta. Við erum einbeittir í það að taka annað skref fram á við og taka Eistana í bakaríið í Höllinni.  Við getum það þegar við spilum okkar leik.  Ég treysti því að allir stígi upp." sagði Jón Arnór og vonaðist eftir því að fá Pavel inn í liðið fyrir þann leik. 
 
"Það er mikill missir af Pavel og verður rosalega sterkt að fá hann inn aftur á móti Eistum því hann er gríðarlega mikilvægur." sagði Jón að lokum. 
Fréttir
- Auglýsing -